fbpx

LÍF hefur borist beiðni frá kvennadeild LSH um aðstoð við kaup á tækjum til legspeglanna. Legspeglun er gerð til að skoða inn í legið, greina mögulega sjúkdóma þar eins og æxli, vöðvahnúta, samvexti, sepa og meðfædda galla. Að auki er legspeglun stundum notuð til að geina orsakir ófrjósemi og óreglulegra blæðinga.

Eins og staðan er núna eru þessar aðgerðir gerðar í svæfingu. Það er hins vegar hægt með sérstökum legspeglunartækjum að gera þessar aðgerðir án svæfingar og því með minna inngripi fyrir konur. Að auki styttir það biðtíma eftir þjónustunni og dregur úr kostnaði. Takmarkið er að kaupa amk þrjú tæki þar sem hvert tæki þarf að fara í þvott á milli sjúklinga. Kostnaðurinn við þau kaup er um fimm milljónir króna.

Tæki sem þetta myndi breyta miklu fyrir kvennadeildina og bæta til muna þá þjónustu sem nú er í boði.

Vilt þú leggja hönd á plóg?