Kvennadeild Landspitalans, Líf Styrktarfélag, Hlin&Co, HAF Studio og svissneska hugveitan W.I.R.E. stóðu fyrir THINK TANK um sjúkrahús framtíðarinnar út frá sjónarhorni Kvennadeildar á HönnunarMars 26.mars s.l. Það er einsdæmi í heiminum að viðburður sem þessi sé haldinn á hönnunarviku og að athyglinni sé beint að upplifunum sjúklinga og framtíðarsýn sjúkrahúsa. Viðburðurinn var hluti af samstarfi þessara aðila sem miðar að því að innleiða hönnunarhugsun við endurbætur og sköpun framtíðarsýnar Kvennadeildarinnar.
Á viðburðinum var skyggnst inn í framtíðarþróun sjúkrahúsa og unnið í þverfaglegum teymum að hugmyndum um framtíðarsýn kvennadeildar. Þáttakendur voru starfsfólk og stjórnendur Landspítalans, skjólstæðingar kvennadeildar, sálfræðingar, hönnuðir og arkitektar. Unnið verður úr hugmyndunum og stefnt að því að nota þær við uppbyggingarstarf fyrir Kvennadeild framtíðarinnar.
Þetta samstarf hófst vorið 2012 með námskeiði í upplifunarhönnun við Listaháskóla Íslands með Kvennadeildina að viðfangsefni. Viðburðurinn er einnig hluti af röð viðburða um “Human Centred Hospital of the Future” sem W.I.R.E. og Hlin&Co standa fyrir.
Hér má lesa meira um upplifunarhönnun í viðtali við Hlín Helgu Guðlaugsdóttur í Fréttablaðinu: http://www.visir.is/like-a-facebook-eins-og-fullnaeging/article/2014703289939
ljósmyndari Sigurbjörg Óskarsdóttir