Um er að ræða 60% starf til að byrja með. Vinnutíminn er sveigjanlegur og starfið yrði að mestu unnið í fjarvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Tilgangur LÍFs styrktarfélags er að styrkja kvennadeild Landspítalans, bæta aðbúnað og þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu sem og kvenna sem þurfa umönnun vegna kvensjúkdóma.
Starfssvið:
- Stýra fjáröflun félagsins og taka þátt í þróun á núverandi og nýjum fjáröflunarleiðum
- Sinna markaðsmálum (fréttabréfi, vefsíðu og samfélagsmiðlum)
- Halda utan um daglegan rekstur félagsins
- Vera í reglulegum og góðum samskiptum við stjórnendur og starfsmenn kvennadeildar
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Góð þekking á markaðsmálum og stafrænni markaðssetningu
- Hugmyndaauðgi og færni í efnissköpun
- Frumkvæði í starfi
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptafærni
- Góð færni í rituðu máli
Nánari upplýsingar veitir núverandi formaður Lífs, Ingrid Kuhlman, ingrid@thekkingarmiðlun.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2022. Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi um umsækjanda og sendist á lif@lifsspor.is