fbpx

Á næstunni stendur Líf, styrktarfélag kvennadeildar LSH, fyrir röð hádegisfyrirlestra i Háskólanum í Reykjavík, um ýmis málefni sem tengjast heilsu kvenna. Fundirnir eru opnir almenningi og allir hjartanlega velkomnir. Fyrirhugað er að halda fjóra fundi og verður sá fyrsti miðvikudaginn 19. janúar.

Fyrsti fundur Lífs fjallar um fyrirhugaða bólusetningu gegn HPV eða vörtuveiru (human papilloma virus) sem er algengasta orsök leghálskrabbameins og veldur einnig vörtum á kynfærum. Alþingi samþykkti á síðasta ári þingsályktunartillögu um að undirbúa og hefja bólusetningu og fjárlaganefnd Alþingis veitti 50 milljónum til verkefnisins. Næstu skref eru í höndum heilbrigðisyfirvalda landsins, að innleiða bólusetningu inn í hefðbundnar forvarnir við heilsugæslu barna.

Árlega greinast 10-20 konur með leghálskrabbamein á Íslandi og tvær til þrjár deyja árlega af völdum sjúkdómsins.  Til eru meira en 100 tegundir af HPV og valda sumar krabbameinum en aðrar vörtum. 75-80% karla og kvenna sýkjast af HPV einhvern tíma á ævinni en flestir eru einkennalausir og losna við veiruna af sjálfu sér. Allir sem lifa kynlífi geta fengið HPV en samfarir eru ekki nauðsynlegar til að smitast. Smokkar eru léleg vörn gegn HPV smiti þar sem þeir verja aðeins það svæði sem þeir hylja.

Þrátt fyrir skipulagða leit að krabbameini í leghálsi hefur ekki tekist að útrýma sjúkdómnum.

Tvö bóluefni eru til við HPV. Hægt er að bólusetja bæði drengi og stúlkur en aðeins stúlkur eru bólusettar í þeim löndum þar sem bólusetningar eru hafnar. Á fundinum (sjá dagskrá að neðan) verður farið yfir stöðuna á Íslandi varðandi bólusetningar fyrir HPV.

Dagskrá:
12:00-12:20   Karl Ólafsson, krabbameinslæknir kvenna, kvennadeild LSH. HPV orsök og afleiðingar
12:20-12:35   Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir, Landlæknisembættinu,  Innleiðing HPV bólusetninga á Íslandi
12:35-12:50  Eva Jónasdóttir, læknir í framhaldsnámi, LSH.  Bóluefni við HPV
12:50-13:00  Spurningar

Fundarstjóri verður Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.