Aðalfundur Lífs, styrktarfélags, verður haldinn í Hringsal Barna- og kvennadeildar Landspítalans
(í tengibyggingu, gengið inn á Barnaspítala)
Miðvikudaginn 29.febrúar kl: 20:00
Dagskrá fundarins:
1. Setning fundar
2. Skipun fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla stjórnar
4. Framlagning ársreiknings fyrir árið 2011
5. Tillaga að félagsgjöldum fyrir árið 2012
6. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir árið 2012
7. Skýrsla Úthlutunarnefndar
8. Tillögur að breytingum á samþykktum félagsins
9. Kosning stjórnarmanna í stað þeirra sem ganga úr stjórn
10. Kosning varamanna í stjórn
11. Önnur mál
Félagar eru hvattir til að mæta sem og aðrir velunnarar félagsins