Fræðslufundir Lífs hefjast að nýju n.k. miðvikudag 28.mars kl: 16:15
Að þessu sinni verður fjallað um það að fæða barn: Meðganga og fæðing, offita á meðgöngu; áhrif á móður og barn
Fundarstaður: Háskólinn í Reykjavík, stofa M208
Markmið mæðraverndar er að styðja konur til heilbrgiðra lífshátta þannig að meðganga gangi sem best fyrir sig, með sem fæstum fylgikvillum og ljúki með fæðingu heilbrigðs barns. Í dag er áætlað að um 20% allra þungaðra kvenna á höfuðborgarsvæðinu sé með þyngdarstuðul (BMI) yfir 30 en það samræmist offitu. Það er vel þekkt að offita eykur líkur á fylgikvillum í meðgöngu auk þess að hafa bein áhrif á heilsu fósturs til lengri og skemmri tíma. Þá er barn of þungrar móður líklegra til að verða sjálft of þungt, við fæðingu, á barnsaldri og sem fullorðið. Konur í ofþyngd eða með offitu geta fengið sérstakan stuðning á meðgöngu til að bæta líðan og horfur, bæði sinnar eigin en einnig ófædda barnsins. Stuðningur og ráðleggingar geta til dæmis verið um bætt mataræði, aukna hreyfingu, aðstoð sjúkraþjálfara ef um stoðkerfisvandmál er að ræða og viðtal við sálfræðing allt eftir því sem við á. Á fundi Lífs verður farið yfir stöðuna í dag og bent á möguleg úrræði til að styðja konur til heilbrigðra lífshátta.
Vandamál tengd meðgöngu og fæðingu
Hildur Harðardóttir, yfirlæknir, kvenna & barnasviði LSH
Offita á meðgöngu, hvers ber að gæta
Ludvig Guðmundsson, yfirlæknir, Reykjalundi
Það eru til lausnir sem virka!
Erla Gerður Sveinsdóttir, yfirlæknir NLFÍ og læknir Heilsuborg