fbpx

Líf styrktarfélag gefur í ár út óvenjulegt jóladagatal til styrktar Kvennadeild Landspítalans.

Jóladagatalinu, sem unnið er í samvinnu við marga þekkta karaktera úr íslenskum barnaævintýrum,  er ætlað að vekja börnin okkar til margvíslegra leikja og stytta þeim stundir fram til jóla.

Krakkarnir fá nýja mynd til að lita hvern dag þar sem við sögu koma kunnar persónur út Latabæ og Ávaxtakörfunni en einnig má finna þar Skessuna í fjallinu og Lilla apa úr Brúðubílnum svo einhverjar persónur séu nefndar.

Hér er þó ekki allt upp talið því Jóladagatal Lífs gefur börnum líka tækifæri til að taka þátt í eldhússtörfum; hver þarf ekki að kunna kúnstina að baka piparkökur og annað gott til jólanna?

Loks opnar Jóladagatal Lífs nýjan heim fyrir krökkunum þegar kemur að leikjum og þrautum, allskonar, en á bak við hvern dag fram að jólum eru margvísleg verkefni sem allir krakkar hafa gaman af að leysa.

Jóladagatal Lífs kostar aðeins kr.1.990 og verður til sölu í öllum verslunum Hagkaups og Samkaups.

Sala hefst 20. nóvember.

Allur ágóði rennur til Lífs styrktarfélags Kvennadeildar Landspítalans.