fbpx

Minningartónleikar verða haldnir sunnudaginn 18. september kl. 20:00 í Bústaðakirkju. Svava Kristín Ingólfsdóttir söngkona heldur tónleikana til minningar um dótturdóttur sína Karenu Mist Kristinsdóttur sem lést skyndilega 23. desember sl. 7 vikna gömul og til minningar um börn er látist hafa úr vöggudauða, veikindum eða í slysum.

Tónleikarnir verða jafnframt styrktartónleikar til styrktar Líf – Kvennadeild Landsspítalans.

Á tónleikunum koma fram m.a. einsöngvararnir Jóhann Friðgeir, Anna Sigga, Gréta Hergils, Edda Austmann, Hanna Björk, Björg Birgisdóttir, Svava Kristín og fleiri góðir, Kór Bústaðakirkju, Jónas Þórir á píanó, Jón Þorsteinn sem vakið hefur mikla athygli sem harmonikkuleikari og aðrir hljóðfæraleikarar.

Aðgangseyrir er 1500 kr