fbpx

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram sl. laugardag. Dagurinn var frábær enda komu saman margir glaðir hlauparar, yndislegt veður og góður árangur. Margir hlupu til góðs og mátti sjá einbeitinguna skína úr andlitum þeirra.

Stjórn Lífs vill færa þeim 76 hlaupurum og boðssveitinni Hlaupalíf sem hlupu til góðs og söfnuðu áheitum fyrir Líf hugheilar þakkir fyrir þeirra framlag. Alls söfnuðust rúmlega kr. 600.000 í áheitum sem munu koma að góðum notum fyrir kvennadeildina.